Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju 1. desember.– 31. desember 2017

Schola Cantorum
Tónleikum Schola cantorum á Allra heilagra messu í dag sunnudaginn 5. nóv. frestað vegna veðurs
05/11/2017
BIRTING / OPNUN SÝNINGAR ERLINGS PÁLS INGVARSSONAR Í HALLGRÍMSKIRKJU SUNNUDAGINN 3. DESEMBER KL. 12:15
01/12/2017

Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju 1. desember.– 31. desember 2017

Mótettukór Hallgrímskirkju

 Jóladagskráin hér.


HÁDEGISJÓL MEÐ SCHOLA CANTORUM

1. desember föstudagur kl. 12 – 12.30

Schola cantorum og Hörður Áskelsson flytja fagra aðventu- og jólasöngva, m.a. Slá þú hjartans hörpustrengi eftir J.S. Bach o.fl.

Miðaverð: 2500 kr./ afsl. verð 2000 kr.- 1250 kr. fyrir listvini


HÁTÍÐARMESSA Á 1. SUNNUDEGI Í AÐVENTU

3. desember 2017  sunnudagur kl. 12.15

Biskup Íslands Frú Agnes Sigurðardóttir prédikar og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.  Mótettukór Hallgrímskirkju syngur hátíðartónlist tengda 1. sunnudegi i aðventu..

Stjórnandi Hörður Áskelsson. Organisti Björn Steinar Sólbergsson.

Hátíðarmessan við upphaf  36. starfsárs Listvinafélags Hallgrímskirkju markar upphaf jólasöfnunar fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.

ERLINGUR PÁLL INGVARSSON- SÝNINGAROPNUN

3. desember sunnudagur 12.15

Opnun nýrrar listsýningar við messulok.

Erlingur Páll Ingvarsson sýnir ný verk í forkirkjunni.

Sýningarstjóri er Rósa Gísladóttir. 

Sýningin stendur fram í byrjun mars 2018. Léttar veitingar í suðursal. Ókeypis aðgangur- allir velkomnir!


HÁDEGISJÓL MEÐ SCHOLA CANTORUM

8. desember föstudagur kl. 12 – 12.30

Schola cantorum og Hörður Áskelsson flytja fagra aðventu- og jólasöngva.

Miðaverð: 2500 kr./ afsl. verð 2000 kr.- 1250 kr. fyrir listvini og nemendur


JÓLATÓNLEIKAR MÓTETTUKÓRS HALLGRÍMSKIRKJU

með ELMARI GILBERTSSYNI ÓPERUSÖNGVARA

„O MAGNUM MYSTERIUM“

9. desember laugardagur kl. 17

10. desember sunnudagur kl. 17

Flytjendur:

Mótettukór Hallgrímskirkju, Elmar Gilbertsson óperusöngvari og Björn Steinar Sólbergsson orgel

Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Á efnisskránni eru þekktir jólasálmar, íslenskar og erlendar jólaperlur, „Ó helga nótt“ o.fl.

Jólastemmning eins og best verður á kosið í fagurlega skreyttri kirkjunni!

Mótettukór Hallgrímskirkju, sem hlotið hefur margvíslegar viðurkenningar fyrir vandaðan og fagran söng sinn og hlaut m.a. þrenn gullverðlaun í alþjóðlegri kórakeppni á Spáni 2014 hefur um árabil glatt tónleikagesti sína  með hrífandi jólatónleikum á aðventunni.

Í ár verður einstaklega hátíðlegur og hugljúfur bragur á tónleikunum en flutt verða sígild jólaverk eftir Adam, Eccard, Lauridsen, Poulenc, Victoria, Whitacre o.fl.

Einsöngvari er Elmar Gilbertsson tenór, sem var valinn söngvari ársins í sígildri tónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á þessu ári.

Aðgangseyrir: 5.900 / afsláttarverð f eldri borgara 4.900 kr., 3000 kr. fyrir nemendur, öryrkja og félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju. 


25 ÁRA AFMÆLI KLAIS-ORGELSINS

13. desember miðvikudagur kl. 20.

Organistar Hallgrímskirkju, Hörður Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson leika jólatónlist og önnur glæsileg verk tengd vígslu orgelsins á hið volduga Klaisorgel kirkjunnar, sem á 25 ára afmæli þennan dag. Hörður, sem hefur verið organisti við kirkjuna í 35 ár, stiklar á stóru úr 25 ára sögu orgelsins og rifjar upp skemmtilega viðburði tengda aðdraganda orgelkaupanna og vígslu orgelsins 13. des. 1992.

Léttar afmælisveitingar og spjall í suðursal að tónleikunum loknum.

Ókeypis aðgangur- allir hjartanlega velkomnir!


ORGELJÓL

16. desember kl. 12 

Björn Steinar Sólbergsson organisti við Hallgrímskirkju leikur aðventu- og jólatónlist eftir Bach og o.fl. og einnig umritanir úr Hnotubrjótnum eftir Tchaikovsky.

Miðaverð 2000/ 1500 kr.- 1000 kr. fyrir listvini, nemendur og öryrkja.


HÁDEGISJÓL MEÐ SCHOLA CANTORUM

15. desember föstudagur kl. 12 – 12.30

Schola cantorum og Hörður Áskelsson flytja fagra jólatónlist.

Miðaverð: 2500 kr./ afsl. verð 2000 kr.- 1250 kr. fyrir listvini


HÁTÍÐARHLJÓMAR VIÐ ÁRAMÓT

30. desember laugardagur kl. 16.30 (ath nýjan tíma) 

31. desember Gamlársdagur 16.30 (ath breyttan tíma) 

Hátíðartónlist fyrir 3 trompeta, orgel og pákur. Trompetleikararnir Eiríkur Örn Pálsson, Einar St. Jónsson og Baldvin Oddsson, Hörður Áskelsson orgelleikari og Eggert Pálsson pákuleikari flytja glæsileg hátíðarverk m.a. eftir J.S. Bach, Albinoni, o fl. barokkmeistara. Unga trompetstjarnan Baldvin Oddsson kemur í stað Ásgeirs H. Steingrímsson að þessu sinni.

Einir vinsælustu tónleikar ársins, þ.s. hátíðarhljómar þeirra félaga koma öllum í áramótaskapið!

Vegna gríðarlegra vinsælda er nú gerð tilraun með að bæta við tónleikum 30. des.

Aðgangseyrir: 4.500/ 4000 kr. -50% afsláttur fyrir nemendur, öryrkja og félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.


Miðasala í Hallgrímskirkju s. 510 1000 og einnig við innganginn og á midi.is.

 Jóladagskráin hér.