LISTAHÁSKÓLINN Í HALLGRÍMSKIRKJU I

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

LISTAHÁSKÓLINN Í HALLGRÍMSKIRKJU I

09/02/19

LISTAHÁSKÓLINN Í HALLGRÍMSKIRKJU I

9. febrúar laugardagur kl 14.00

Nemendur Tónlistardeildar Listaháskólans flytja fjölbreytta tónlist

Samstarf Tónlistardeildar LHÍ við Hallgrímskirkju hefur borið ríkulegan ávöxt og er haldið áfram með þrenna tónleika á árinu.  Aðsóknin hefur verið frábær og er þetta nú orðinn einn stærsti tónleikaviðburðurinn í starfi tónlistardeildar LHÍ. Markmiðið með þessu samstarfi er að kynna nemendur skólans fyrir töfrum Klaisorgelsins og rými kirkjunnar til tónlistarflutnings og á sama tíma gefa listvinum kirkjunnar tækifæri til að heyra hvað hæfileikaríkir nemendur tónlistardeildar hafa fram að færa.

Segja má að þessi samvinna hafi slegið í gegn!

Ókeypis aðgangur- allir velkomnir!

Details

Date:
09/02/19