JÓLATÓNLEIKAR MÓTETTUKÓRS HALLGRÍMSKIRKJU
Flytjendur:
Mótettukór Hallgrímskirkju
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Orgelleikari: Björn Steinar Sólbergsson
Einleikur á fiðlu: Auður Hafsteinsdóttir.
Hrífandi og hátíðleg jólastemmning í fagurlega skreyttri kirkjunni!
Á hinum árlegu og sívinsælu jólatónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju er í ár boðið upp á fallega kórtónlist þar sem áhersla er lögð á undur og dulúð jólanna í bland við við þekkta aðventu-og jólasálma.
Meðal annarra fagurra verka er Íslandsfrumflutningur á Magnificat eftir Sigurð Sævarsson, “Slá þú hjartans hörpustrengi” eftir J.S. Bach og hið hrífandi O magnum mysterium eftir Olav Gjelo, þ.s. fiðlueinleikur fléttast saman við a cappella kórsönginn. Auður Hafsteinsdóttir, einn fremsti fiðluleikari landsins, leikur einnig í samleik með Klais-orgelinu.
Aðgangseyrir: 5.900 / 4.900 kr., afsláttur fyrir nemendur, öryrkja og félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.