Þórir Jóhannsson og Eyþór Ingi Jónsson á Alþjóðlegu orgelsumri

Bine Katrine Bryndorf
Bine Katrine Bryndorf á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju
04/08/2017
Thomas Sheehan
Thomas Sheehan – einn efnislegasti ungi orgelvirtúós Bandaríkjanna á Alþjóðlegu orgelsumri um helgina
11/08/2017

Þórir Jóhannsson og Eyþór Ingi Jónsson á Alþjóðlegu orgelsumri

Þórir Jóhannsson og Eyþór Ingi Jónsson

Fimmtudaginn 10. ágúst kl.12 verður einstakir tónleikar á Alþjóðlegu orgelsumri með fjölbreyttri efnisskrá og frumlegri hljóðfærasamsetingu. Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Eyþór Ingi Jónsson organisti munu flytja saman tónlist eftir G.F. Handel, Z. Kodály, Karólínu Eikríksdóttur og M. Bruch. Þórir og Eyþór munu einnig frumflytja spennandi verk eftir Gísla Jóhann Grétarsson.

Kontrabassaleikarinn Þórir Jóhannsson lauk Postgraduate Diploma frá the Royal Northern College of Music í Manchester. Eftir nokkurra ára dvöl í Danmörku þar sem Þórir var lausráðinn við nokkrar helstu hljómsveitir beggja vegna Eyrarsundsins flutti hann aftur til Íslands haustið 2000 og er nú fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann er kennari í Tónlistarskóla Kópavogs og er virkur kammertónlistarmaður og hefur til dæmis reglulega komið fram með kvintett á tónleikum hins virta Kammermúsikklúbbs. Þórir hefur frumflutt ýmis verk fyrir kontrabassa, ýmist einan, með píanói eða konsert með kammersveit. Rhapsodia per Contrabasso et Piano eftir Þórð Magnússon frumflutti hann 2011.
2016 leiðbeindi Þórir í fyrsta sinn í Alþjóðlegu Tónlistarakademíu Hörpu.

Eyþór Ingi Jónsson lauk kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1998, undir leiðsögn Harðar Áskelssonar, Fríðu Lárusdóttur o.fl. Því næst lauk hann 7 ára námi við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð, fyrst við kirkjutónlistardeild og síðar við konsertorganistadeild. Aðalorgelkennari hans var prof. Hans-Ola Ericsson. Auk þess að leggja áherslu á orgelleik í námi sínu hefur Eyþór lagt mikla áherslu á kórstjórn. Kennari hans var prof. Erik Westberg.

Eyþór starfar nú sem organisti við Akureyrarkirkju. Þá er hann stofnandi og stjórnandi kammerkórsins Hymnodia. Eyþór hefur einbeitt sér bæði að flutningi tónlistar frá 17. öld og hins vegar nútímatónlistar og spuna, bæði fyrir orgel og kór. Hann hefur pantað og/eða frumflutt tugi tónverka eftir íslensk og erlend tónskáld. Eyþór hefur komið fram á fjölda tónleika, bæði einn við orgelið eða með hljóðfæraleikurum eða söngvurum. Hann er einn af forkólfum Barokksmiðju Hólastiftis. Eyþór var bæjarlistamaður Akureyrar 2011–2012.