STREYMI – Guðbjörg Ringsted sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju

Tenging - Sýningaropnun í Hallgrímskirkju - Sigurður Guðjónsson
TENGING Sýningarlok á sýningu Sigurðar Guðjónssonar myndlistarmanns
14/03/2015
Endurreisnartónlist á boðunardegi Maríu
Endurreisnartónlist á boðunardegi Maríu – Sunnudagur 22. mars 2015 kl. 17 í Hallgrímskirkju
19/03/2015

STREYMI – Guðbjörg Ringsted sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju

Guðbjörg Ringsted sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju

Listvinafélag Hallgrímskirkju kynnir sýningu Guðbjargar Ringsted, í forkirkju Hallgrímskirkju.

Opnun sýningarinnar er föstudaginn 20. mars kl. 18-20.
Allir velkomnir.
Sýningin stendur yfir til 18. maí 2015- opið alla daga kl. 9-17.

Á sýningunni eru ný málverk eftir Guðbjörgu Ringsted. Málverk Guðbjargar eru að hluta til byggð á jurta- og blómamynstrum íslenska faldbúningsins sem Sigurður Guðmundsson teiknaði á síðari hluta nítjándu aldar. Níels Hafstein forstöðumaður Safnasafnsins við Eyjafjörð hefur fjallað um verk Guðbjargar og segir m.a. um verk hennar: “Guðbjörg finnur blómum sínum nýstárlegan farveg, sem er magnaður upp af persónulegu innsæi og listfengi…. þau eru spegilmyndir umhverfisins, markviss innhverf tjáning. “

Guðbjörg Ringsted stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og hefur sýnt verk sín á sýningum víða um land. Má nefna Hof menningarhús á Akureyri, Edinborgarhúsið á Ísafirði, Safnasafnið við Eyjafjörð og Viðar Gallerí á Akureyri. Auk þess að sýna á Íslandi hefur Guðbjörg einnig tekið þátt í samsýningum á Spáni, Litháen og Kína.

Heimasíða: www.gudbjorgringsted.is