Passíusálmalestur í Hallgrímskirkju á Föstudaginn langa kl. 13-18

Söngvahátið barnanna í Hallgrímskirkju á Skírdag 13. apríl kl. 14.00 (ath. breyttan tíma)
07/04/2017
Tónleikar nemenda Listaháskóla Íslands
Tónleikar Tónlistardeildar Listaháskólans í samvinnu við Listvinafélagið laugardaginn 29. apríl kl. 12- (ath. breyttan tíma)
27/04/2017

Passíusálmalestur í Hallgrímskirkju á Föstudaginn langa kl. 13-18

Hallgrímur Pétursson - Passíusálmar

Heildarflutningur á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar.  Rithöfundar sjá um lesturinn.

Listvinafélag Hallgrímskirkju hefur staðið fyrir heildarflutningi á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar um margra ára skeið og lagt áherslu á að fá mismunandi hópa úr þjóðfélaginu til að lesa hverju sinni.

Í ár er það breiður hópur rithöfunda, sem flytur sálmana, en rithöfundarnir lesa allir úr hinni nýju vönduðu útgáfu sálmanna sem Mörður Árnason hafði umsjón með og gefin var út fyrir 2 árum hjá Crymogea.

Eftirtaldir rithöfundar lesa:

  • Anton Helgi Jónsson
  • Arngunnur Árnadóttir
  • Ármann Jakobsson
  • Bryndís Björgvinsdóttir
  • Einar Kárason
  • Kristín Ómarsdóttir
  • Kristín Steinsdóttir
  • Oddný Eir Ævarsdóttir
  • Sölvi Björn Sigurðsson
  • Sveinn Yngvi Egilsson

Björn Steinar Sólbergsson, nemendur Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands leika á Klais orgel kirkjunnar eftir 5. hvern sálm.

Umsjón með lestrinum hafa Sveinn Yngvi Egilsson og Ævar Kjartansson.

Ókeypis aðgangur og öllum velkomið að koma og fara að vild yfir daginn. Gott er að taka sína eigin Passíusálma með til að fylgjast með lestrinum.

Listvinafélag Hallgrímskirkju 35. starfsár