“LÚTHERSDAGAR Í HALLGRÍMSKIRKJU“ – 26.-31. október 2017

Schola Cantorum
Síðustu hádegistónleikar Schola Cantorum í sumar – Miðvikudaginn 30. ágúst 2017 kl. 12.00-12.30
29/08/2017
Alfa & Omega í Hallgrímskirkju
Síðasta sýningarhelgi Alfa&Omega í Hallgrímskirkju
27/10/2017

“LÚTHERSDAGAR Í HALLGRÍMSKIRKJU“ – 26.-31. október 2017

Hallgrímskirkja

Martin Luther26. október- fimmtudagur
Vígsludagur Hallgrímskirkju

12.00
KYRRÐARSTUND- Hallgrímur & Lúther.
Hildigunnur Einarsdóttir alt og Björn Steinar Sólbergsson orgel.
Íhugun flytur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.

27. október- föstudagur
Hallgrímsdagurinn -343. ártíð Hallgríms Péturssonar

20.00
SÁLMAR Á NÝRRI ÖLD!
Kammerkórinn Schola cantorum
Stjórnandi: Hörður Áskelsson

„Sálmar á nýrri öld“ eru 26 sálmar eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason fyrir kór án undirleiks. Þessir hrífandi og fjölbreyttu sálmar fjalla um lofgjörð, bæn, gleði og sorg.
Miðaverð: 2500 kr. Miðasala við innganginn og á midi.is.


28. október- laugardagur
14.00
OPNUN-TESUR
Tesur er þátttökugjörningur sem myndlistarkonurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal standa fyrir dagana 28. – 31. október.
Verkið minnir á gjörninginn þegar Lúther negldi tesurnar 95 á kirkjudyrnar í Wittenberg í Þýskalandi 31.október 1517 og markaði þannig upphaf siðbótar í Evrópu.
Ókeypis aðgangur – allir hjartanlega velkomnir!


29. október- sunnudagur
11.00
HÁTÍÐARMESSA-343. ártíð Hallgríms Péturssonar.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarson, sem predikar. Tónlistarflutningur: Mótettukór Hallgrímskirkju, Björn Steinar Sólbergsson orgel Oddur A. Jónsson bassi og Inga Rós Ingólfsdóttir selló, stjórnandi Hörður Áskelsson. Fermingarbörn taka þátt og barnastarf í umsjón Ingu Harðardóttur.

17.00
KANTÖTUGUÐSÞJÓNUSTA – Lúther og Bach
Flutt verður “Lútherskantatan” Christ unser Herr zum Jordan kam BWV 7 fyrir þrjá einsöngvara, kór og hljómsveit. Auk þess verða fluttir inngangskór og sálmur úr kantötunni Aus tiefer Not ruf ich zu dir BWV 38, Kyrie úr Messu í F-dúr og útsetningar Bachs af sálmalögum.

Mótettukór Hallgrímskirkju, Kammersveit Hallgrímskirkju, Auður Guðjohnsen alt, Benedikt Kristjánsson tenór, Oddur A. Jónsson bassi.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Prestar: Dr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti prédikar.
Organisti Björn Steinar Sólbergsson.


30. október- mánudagur

9.00-14.00
SKÓLABÖRNIN OG TESURNAR.
Skólabörn af höfuðborgarsvæðinu heimsækja Hallgrímskirkju og útbúa sínar tesur.
Umsjón: Inga Harðardóttir barna- og æskulýðsfulltrúi Hallgrímskirkju.
Endurtekið á Siðbótardaginn 31.október.

20.00
TÓNLEIKHÚS UM TVÆR SIÐBÓTARKONUR
Elisabeth og Halldóra, Bach og Grallarinn.
Verkið var samið í tilefni af því að 500 ár eru nú frá upphafi siðbótarinnar og er ætlað að varpa ljósi á þátttöku og áhrif kvenna á mótunarárum siðbótarinnar.
Flytjendur: Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk, leikkonurnar María Ellingsen og Steinunn Jóhannesdóttir, Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran, Jóhanna Halldórsdóttir alt, Bragi Bergþórsson tenór og Benedikt Ingólfsson bassi. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju og félagar úr dömukórnum Aurora leiða söng.
Listrænir stjórnendur: Diljá Sigursveinsdóttir og Guðný Einarsdóttir
Miðaverð: 2.500 kr. Miðasala í Hallgrímskirkju við innganginn og á midi.is.


31. október – þriðjudagur
Siðbótardagurinn.

12.00- 12.30
95 TESUR LESNAR
Siðbótin hófst fyrir 500 árum þegar Marteinn Lúther negldi 95 tesur á kirkjudyr. Tesurnar, sem breyttu kirkjulífi, stjórnmálum og menningarlífi Evrópu, verða lesnar upp í heild í fyrsta sinn í kirkju á Íslandi.
Umsjón hafa dr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.

18.00-20.00
HALDIÐ UPP Á 500 ÁRA SIÐBÓTARAFMÆLIÐ!

Afmælisveisla í Hallgrímskirkju því 500 ára siðbótarafmælisins er minnst á þessum degi um heim allan.

Afmælisávarp- Lúthers minnst- kórsöngur- sálmasöngur!

Eftir hátíðarhöldin í kirkjunni er öllum gestunum boðið í afmælisgleði í suðursal Hallgrímskirkju!

Dagskrána er einnig hægt að lesa með því að  smella hér.

Þátttakendur eru Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar, Björn Steinar Sólbergsson organisti, dr. Sigurður Árni Þórðarson sóknarprestur og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Gunnar J. Gunnarsson formaður nefndar um 500 ára siðbótarafmælið og afmælisgestirnir sem syngja með!

Þakkir fá:
Hallgrímssöfnuður
Fimm alda nefnd um siðbótarafmælið
Sr. Arna Grétarsdóttir
reykjavíkurprófastsdæmi vestra
Hafsteinn Sv. Hafsteinsson grafískur hönnuður
GEGG- pappírsheildverslun
Litróf

Hallgrímskirkja