Lúthersdagar í Hallgrímskirkju 26.-31. október 2017 – „Sálmar á nýrri öld“

Alfa & Omega í Hallgrímskirkju
Síðasta sýningarhelgi Alfa&Omega í Hallgrímskirkju
27/10/2017
Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk
Lúthersdagar í Hallgrímskirkju 26.- 31.október
27/10/2017

Lúthersdagar í Hallgrímskirkju 26.-31. október 2017 – „Sálmar á nýrri öld“

Schola cantorum

Hallgrímskirkja 27. október 2017 klukkan 20.00 

Hallgrímsdagurinn, 343. ártíð Hallgríms Péturssonar

„Sálmar á nýrri öld“
Kammerkórinn Schola cantorum 
Stjórnandi: Hörður Áskelsson 

Listvinafélag Hallgrímskirkju og Hallgrímssöfnuður standa fyrir Lúthersdögum í Hallgrímskirkju 26. – 31. október nk.  í tilefni af 500 ára afmæli siðbótarinnar sem nú er minnst um allan heim. Til að kallast á við Lúther og sálmana, sem Lúther vildi að fluttir væru á móðurmálinu býður kammerkórinn Schola cantorum til tónleika í Hallgrímskirkju föstudagskvöldið 27. október klukkan 20.00 undir yfirskriftinni “Sálmar á nýrri öld”, en þar flytur kórinn eingöngu sálma eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason. Sálmalögin, sem eru sett út fyrir fjögurra radda kór, eru sungin án undirleiks. 

Þessir hugljúfu og hrífandi sálmar Aðalsteins og Sigurðar hafa þegar margir öðlast vinsældir en Skálholtsútgáfan gaf sálmana út í kórbókaröðinni Söngvasveigur árið 2010. Í formála bókarinnar stendur: “Efnistök Sálma á nýrri öld eru víðfeðm, lofgjörð, bæn, gleði, sorg, kirkjuathafnir, kirkjuár, morgunn og kvöld, sumir eiga sér óræðan stað í tíma og rúmi og falla varla undir hefðbundnar skilgreiningar á sálmi.” Þess má geta að Schola cantorum syngur sálmana inn á geislaplötu í næsta mánuði.

Schola cantorum er í  fremstu röð kóra á Íslandi og hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir söng sinn, m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins 2016 og geislaplata kórsins Meditation hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda víða um heim.

Miðaverð er 2.500 kr og er miðasala við innganginn og á midi.is

Sjá listvinafelag.is, hallgrimskirkja.is, scholacantorum.is

Efnisskrá: 

1. Bæn 

2. Bænhús 

3. Hvar ertu Guð? 

4. Lifandi Guð 

5. Í orði Guðs 

6. Í friðarins nafni 

7. Ég er 

8. Á páskum 

9. Vitneskja 

10. Tveir englar 

11. Heilög stund 

12. Kom engill 

13. Tignarlegir tindar 

14. Nýr hljómur 

15. Hinsta kveðja

16. Upp í móti 

17. Allir góðir englar 

18. Kvöldljóð 

19. Ljósfaðir