Íslensku Tónlistarverðlaunin 2017 – Schola cantorum “Flytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar”

Sýningaropnun - HILMA STÚDÍUR: SVANIR
HILMA STÚDÍUR: SVANIR- Sýningaropnun föstudaginn 3. mars kl. 18-19.30. Mótettukórinn syngur og listamaðurinn segir frá verkum sínum
01/03/2017
Söngvahátið barnanna í Hallgrímskirkju á Skírdag 13. apríl kl. 14.00 (ath. breyttan tíma)
07/04/2017

Íslensku Tónlistarverðlaunin 2017 – Schola cantorum “Flytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar”

Schola Cantorum

Það er Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, mikil gleði og heiður að hafa verið valinn “Flytjandi ársins í sígildri tónlist” á uppskeruhátíð íslensku tónlistarverðlaunanna í Hörpu í gærkvöldi. Kórinn fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári m.a. með útgáfu geislaplötunnar Meditatio, sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda víða um heim og flutningi á Jólaóratóríu Bachs í desember.

Auk þess kom kórinn fram á 12 tónleikum á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju, frumflutti Sálumessu eftir Sigurð Sævarsson o.fl. Við afhendingu tónlistarverðlaunanna söng kórinn eitt af lögunum á Meditatio, O nata lux eftir Morten Lauridsen. Schola cantorum þakkar Íslensku Tónlistarverðlaununum þennan heiður og þá hvatningu sem hún felur í sér.

Kórinn færir sóknarnefnd og starfsfólki Hallgrímskirkju, Listvinafélagi Hallgrímskirkju, Ingu Rós Ingólfsdóttur framkvæmdastjóra félagsins og öllum þeim sem skapa það frábæra bakland sem kórnum er búið til að ná árangri í söng.