Hátíðarhljómar á Gamlárskvöld

Jól með Schola cantorum
Jól með Schola cantorum – Gamlir og nýir söngvar jólanna
22/12/2014
Sigtryggur | Listamannaspjall um 365 daga í Grasagarðinum við sýningarlok
Listamannaspjall um 365 daga í Grasagarðinum við sýningarlok | Sunnudaginn 11. janúar kl. 15:00 í Hallgrímskirkju
09/01/2015

Hátíðarhljómar á Gamlárskvöld

Trompetar og orgel
  1. desember Gamlársdagur kl. 17.00 Hátíðarhljómar við áramót. 

Hátíðartónlist fyrir 3 trompeta, orgel og pákur.

Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Eggert Pálsson pákuleikari og Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju flytja glæsileg hátíðarverk m.a. eftir Vivaldi, Purcell, Bach ( Tokkata og fúga í d-moll) Zelenka og Albinoni ( Adagio).

Þetta  er í 22. sinn sem Listvinafélag Hallgrímskirkju býður upp á tónleika undir yfirskriftinni Hátíðarhljómar við áramót. Áramótastemmningin byrjar með hátíðarhljómum þeirra félaga, enda njóta þessir tónleikar gríðarlegra vinsælda og hafa þeir leikið fyrir fullu húsi á gamlárskvöld allt frá vígslu Klais orgelsins 1992. Lúðraþytur og trumbursláttur hafa um aldir tengst hátíðum. Fyrirmyndir þess má finna í elstu sálmabók kirkjunnar, Saltaranum, þar sem Drottinn er lofaður með bumbum og málmgjöllum. Lúðraköll – fanfarar tengjast bæði konunglegum lífvörðum og herkvaðningum af ýmsum toga og í kirkjunni hafa þessi hljóðfæri meðal annars verið notuð þegar upprrisu Krists er fagnað á páskum og með dýrðarsöng englanna á Betlehemsvöllum.

Aðgangseyrir 3.500 kr / 2.500 kr. Miðasala Á MIDI.IS og í Hallgrímskirkju s. 510 1000.

Ásgeir Hermann Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson luku allir tónlistarnámi við Tónlistarskólann í Reykjavík áður en þeir héldu til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Ásgeir lauk BM-prófi frá Mannes College of Music í New York, Eiríkur lauk BA-prófi frá Berklee College of Music í Boston og MFA-gráðu frá Californian Institute of the Arts í Los Angeles og Einar BM-prófi frá Indiana University. Í dag eru þeir allir fastráðnir hljóðfæraleikarar við Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að vera mjög virkir í tónlistarlífi höfuðborgarsvæðisins. Þá hafa þeir allir leikið með Kammersveit Reykjavíkur og Hljómsveit Íslensku óperunnar, með ýmsum stórsveitum, svo sem Stórsveit Ríkisútvarpsins og Stórsveit Reykjavíkur auk þess sem Eiríkur er einn af stofnfélögum Caput-hópsins. Einnig kenna þeir trompetleik við ýmsa tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Eggert Pálsson stundaði nám á píanó og slagverk við Tónlistarskólann í Reykjavík og hélt þaðan til Vínar í Austurríki þar sem hann lagði stund á slagverksnám við Listaháskólann í Vín. Hann hefur lengi verið fastráðinn pákuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands auk þess að taka þátt í mörgum hliðum íslensks tónlistarlífs undanfarna þrjá áratugi. Hann er félagi í slagverkshópnum Benda og Kammersveit Reykjavíkur. Hann hefur einnig leikið með tónlistarhópnum Caput og er félagi í sönghópnum Voces Thules sem flytur margar tegundir söngtónlistar, helga sem heiðna.

Hörður Áskelsson hefur verið organisti og kantor Hallgrímskirkju allt frá því hann lauk framhaldsnámi í Düsseldorf í Þýskalandi árið 1982. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs kirkjunnar og stóð meðal annars að stofnun Listvinafélags Hallgrímskirkju, Kirkjulistahátíðar og Alþjóðlega orgelsumarsins. Þá stofnaði hann bæði Mótettukór Hallgrímskirkju (1982) og Kammerkórinn Schola Cantorum (1996) sem hann hefur stjórnað frá upphafi. Sem organisti hefur Hörður haldið tónleika í mörgum stærstu kirkjum Evrópu, m.a. í St. Michaelis í Hamborg, Kölnardómkirkju, St. Sulpice í París, dómkirkjunni í Brussel og dómkirkjunni í Helsinki. Hann hefur hlotið margs háttar viðurkenningu fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á Íslandi, þ.á m. íslensku tónlistarverðlaunin og riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu.

 

Hörður, Ásgeir og Eiríkur komu fram á tónleikum í Fílharmóníunni í St. Pétursborg fyrir troðfullu húsi (2000 manns) haustið 2005 við frábærar undirtektir og einnig hafa þeir leikið á tónlistarhátíð í Frankfurt-Höchst í Þýskalandi og í Akureyrarkirkju. Geisladiskurinn Trompeteria með þeim félögum hefur hlotið mikla dreifingu og er til sölu í Hallgrímskirkju og víðar. Í undirbúningi er útgáfa á nýjum diski með áherslu á tónverk fyrir þá alla fimm.