Hádegistónleikar Schola cantorum kl. 12 miðvikudaginn 28. ágúst

Hallgrímskirkja
Sálmafoss á Menningarnótt 24. ágúst kl. 15-21
23/08/2019
Pál Haukur
Sýningaropnun Páls Hauks sunnudaginn 8. september kl. 12.15 – Ósegjanleiki
06/09/2019

Hádegistónleikar Schola cantorum kl. 12 miðvikudaginn 28. ágúst

Schola cantorum

Hádegistónleikar Schola cantorum kl. 12 miðvikudaginn 28. ágúst í Hallgrímskirkju.

Á tónleikunum verður flutt falleg, hátíðleg og skemmtileg dagskrá sem spannar vítt litróf frá miðöldum á Íslandi til vorra daga með viðkomu í íslenskum tvísöng auk þess sem nokkrar glæsilegar og þekktar perlur evrópskra tónbókmennta verða teknar til kostanna. Miðaverð er 2.700 kr. og það er posi á staðnum. Miðasala fer fram á midi.is og í kirkjunni klukkutíma fyrir tónleika. 

Þetta eru síðustu sumartónleikar Schola cantorum í ár. 

Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, var stofnaður árið 1996 af Herði Áskelssyni kantor í félagi við nokkra meðlimi úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Allar götur síðan hefur kórinn gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku tónlistarlífi.

Frumflutningur á verkum íslenskra tónskálda hefur jafnan vegið þungt á efnisskrá kórsins en einnig fjölröddun endurreisnartímans auk þess sem Schola cantorum hefur flutt ýmis stórvirki barokksins ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju.