Bine Katrine Bryndorf á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju

Guggenmos, Willibald
Willibald Guggenmos á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju
28/07/2017
Þórir Jóhannsson og Eyþór Ingi Jónsson
Þórir Jóhannsson og Eyþór Ingi Jónsson á Alþjóðlegu orgelsumri
07/08/2017

Bine Katrine Bryndorf á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju

Bine Katrine Bryndorf

Helgina 5.-6. ágúst mun einn eftirsóttasti konsertorganisti Dana Bine Katrine Bryndorf leika á dásamlega Klais orgel Hallgrímskirkju.
Á fyrri tónleikum helgarinnar Laugardaginn 5.ágúst kl. 12-12.30 mun Bine flytja tónlist eftir G. Muffat, C.P.E. Bach og Buxtehude.
Á seinni tónleikum helgarinnar Sunnudaginn 6.ágúst kl. 17 -18 mun Bine flytja fallega orgel tónlist eftir D. Buxtehude, J. Brahms, J.S. Bach (Passaclia), M. Weckmann og M. Radelescu.
Miðasala er við innganginn 1 klst. fyrir tónleika og á midi.is.
Miðaverð 2000 kr á hádegistónleika en 2.500 kr á sunnudagstónleikana sem eru 60 mín. langir.

5. ÁGÚST 2017 KL. 12.00 í Hallgrímskirkju
BINE KATRINE BRYNDORF
HALLARORGANISTI Í FRIÐRIKSBORGARHÖLL
Í HILLERØD, DANMÖRKU
TÓNLIST EFTIR: G. MUFFAT, C.P.E. BACH, BUXTEHUDE
Miðaverð 2000 kr.

og

6. ÁGÚST 2017 KL. 17.00 í Hallgrímskirkju
BINE KATRINE BRYNDORF
HALLARORGANISTI Í FRIÐRIKSBORGARHÖLL
Í HILLERØD, DANMÖRKU
TÓNLIST EFTIR: D. BUXTEHUDE, J. BRAHMS, J.S.BACH (PASSACLIA), M. WECKMANN, M. RADELESCU
Miðaverð 2500 kr.

Bine Katrine Bryndorf er hallarorganisti við Friðriksborgarhöllina í Hillerød, um 40 km fyrir norðan Kaupmannahöfn. Hún er einnig gestaprófessor við Royal Academy of Music í Lundúnum og svo kennir hún við Konunglega konservatoríið í Kaupmannahöfn.

1994‒2017 kenndi hún fyrst í Vínarborg og svo í Kaupmannahöfn. Hún varð prófessor 2001 og síðar deildarstjóri við Konunglega konservatoríið. Í ár hefur hún söðlað um og starfar nú sem hallarorganisti við kapelluna í Friðriksborgarhöll við hið heimsþekkta Esaias Compenius orgel. Hún kennir smávegis í Kaupmannahöfn og ferðast reglulega til Lundúna til að kenna þar.
Bine Katrine, sem á ættir að rekja til Íslands, er heimsþekktur organisti, sérstaklega fyrir túlkun sína á barokktónlist og hún er mjög eftirsótt til að kenna á meistaranámskeiðum og sem dómari í orgelkeppnum. Þá leikur hún einnig mikið á sembal með litlum kammertónlistarhópum.