Alþjóðlegt Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2018 – 16. júní – 19. ágúst

Hallgrímskirkja
Aðalfundarboð miðvikudaginn 20. júní kl. 17
06/06/2018
Eyþór Franzson Wechner
Eyþór Franzson Wechner leikur á opnunartónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju um helgina
15/06/2018

Alþjóðlegt Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2018 – 16. júní – 19. ágúst

Alþjóðlegt orgelsumar 2017

4 tónleikar á viku- þrennir orgeltónleikar og einir kórtónleikar

VELKOMIN Á ALÞJÓÐLEGT ORGELSUMAR 2018!

Hallgrímskirkja - OrgelAlþjóðlegt orgelsumar (AO) í Hallgrímskirkju býður til glæsilegrar tónlistarveislu með 40 spennandi tónleikum í sumar, þar sem hrífandi orgeltónar og vandaður kórsöngur fylla hvelfingar Hallgrímskirkju.

Með fernum tónleikum á viku frá 16. júní til 19. ágúst 2018 gefst gestum Alþjóðlegs orgelsumars tækifæri til að hlýða á mjög fjölbreytta orgeltónlist, en framúrskarandi organistar frá 9 þjóðlöndum leika á Klais orgel Hallgímskirkju sem er pípuorgel af fullkomnustu gerð og þykir eitt eftirtektarverðasta orgel á Norðurlöndunum.

Allt frá sumrinu 1993 hefur Klaisorgelið heillað tónleikagesti með blæbrigðaríkum hljómum, ýmist undurblíðum eða ofsafengnum. Orgeltónlist sumarsins er frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar, allt frá endurreisn til nútímans, sumir organistar leika af fingrum fram fantasíur um sálmalög sem þeir fá í hendurnar á staðnum.

Val á flytjendum yfirstandandi sumars endurspeglar þá stefnu að bjóða upp á sem mesta fjölbreytni. Organistarnir velja efnisskrár sínar með hliðsjón af Klaisorgelinu og bjóða jafnan upp á sýnishorn af tónlist sinna heimalanda. Nú á 26. ári Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju kemur fram tónlistarfólk frá Þýskalandi, Frakklandi, Austurríki, Svíþjóð, Spáni, Tékklandi, Ítalíu, Ungverjalandi og Íslandi. Flestir hinna erlendu flytjenda, sem koma fram um helgar eru þekktir konsertorganistar, sumir eiga langa sögu að baki, aðrir hafa vakið mikla ahygli þrátt fyrir ungan aldur. Á fimmtudögum koma fram íslenskir organistar og stundum í fylgd annars tónlistarfólks til að auka enn á fjölbreytnina.
Öll miðvikudagshádegi til loka ágúst eru kórtónleikar með kammerkórnum Schola cantorum sem átt hefur farsælt samstarf við Listvinafélagið í 22 ár. Einnig er gleðilegt að hinn heimsþekkti barna- og unglingakór LACC Los Angeles Childrens Choir er gestur Alþjóðlegs orgelsumars 2018 og kemur fram á aukatónleikum mánudaginn 2. júlí á leið sinni til Noregs.

Það er mér mikil gleði að hleypa af stokkunum Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju í 26. skipti.

Fyrir hönd Listvinafélags Hallgrímskirkju og Alþjóðlegs orgelsumars býð ég tónleikagesti hjartanlega velkomna, megi sem flestir njóta tónlistarinnar í birtu og fegurð helgidómsins.

Gleðilegt orgelsumar 2018!

Hörður Áskelsson
listrænn stjórnandi

Alþjóðlegt orgelsumar 16. júní til 19. ágúst 2018.

Fernir tónleikar í hverri viku:

Alla miðvikudaga (frá 20. júní til 22. ágúst ) kl. 12:00‒12:30 syngur kammerkórinn Schola cantorum íslensk og erlend verk af efnisskrá sinni.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Alla fimmtudaga (frá 21. júní til 16. ágúst) kl. 12:00‒12:30 leika íslenskir organistar einleik á orgelið eða eru með einleikara/söngvara með sér:

21. júní Baldvin Oddsson trompet, Steinar Logi Helgason organisti Háteigskirkju
28. júní Elísabet Þórðardóttir organisti Kálfatjarnarkirkju
5. júlí Kitty Kovács organisti Landakirkju Vestmannaeyjum
12. júlí Pamela De Sensi flautuleikari og Steingrímur Þórhallsson organisti Neskirkju Reykjavík
19. júlí Þórunn Elín Pétursdóttir sópran, Lenka Mateova organisti Kópavogskirkju
26. júlí Lára Bryndís Eggertsdóttir orgel
2. ágúst Kári Þormar organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík
9. ágúst Friðrik Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju
16. ágúst Jónas Þórir Jónasson organisti Bústaðakirkju leikur lög eftir George Gershwin undir stefinu „Rapsody in Blue“

Alla laugardaga (frá 16. júní til 19. ágúst) kl. 12:00-12:30 og alla sunnudaga kl. 17:00 leika helgargestaorganistar Hallgrímskirkju:
16. og 17. júní: Eyþór Franzson Wechner, Blönduóskirkju
23. og 24. júní: Björn Steinar Sólbergsson, Hallgrímskirkja Reykjavík
30. júní og 1. júlí: Irena Chřibková, Basilíku heilags Jakobs, Prag, Tékklandi
7. og 8. júlí: Winfried Bönig, Dómkirkjunni í Köln
14. og júlí: Loreto Aramendi, Santa Maria Basilica, San Sebastián, Spáni
21. og 22. júlí: Thierry Escaich, Saint-Etienne-du-Mont, París
28. og 29 júlí: Thierry Mechler, Kölnarfílharmoníunni
4. og 5. ágúst: Elke Eckerstorfer, St. Augustin kirkju, Vínarborg
11. og 12. ágúst: Hans-Ola Ericsson, prófessor í orgelleik við McGill í Montreal, Kanada
19.ágúst: Hannfried Lucke, prófessor í orgelleik við Mozarteum háskólann í Salzburg. Hannfried Lucke kemur einnig fram á Sálmafossi laugardaginn 18. ágúst.

 Sjá efnisskrár hér.