Vikuna 31. ágúst til 6. september mun hinn vel þekkti, breski kórstjóri og raddþjálfari Simon Carrington dveljast á Íslandi, þar sem hann þjálfar kammerkórinn Schola cantorum í Hallgrímskirkju. Sunnudaginn 6. ágúst stjórnar hann flutningi kórsins á verkum eftir John Taverner og James Macmillan, en þeir eru fulltrúar þess elsta og nýjasta í sögu fjölraddaðs söngs. Verkin sem Carrington hefur valið til flutnings eru "The Western Wind Mass" eftir Taverner og 6 svokallaðar "Strathclyde Motets" eftir Macmillan. Það má segja að Macmillan hafi slegið í gegn með tónsmíðum sínum undanfarin ár, en tónlist hans nýtur mikillar viðurkenningar og hefur hrifið áheyrendur um allan heim. Mótettur Macmillans, sem Schola cantorum flytur undir stjórn Carringtons eru samdar árið 2008 og gera ítrustu kröfur til söngvaranna, sem eru aðeins 16 talsins.
Carrington var einn af upphafsmönnum sönghópsins King’s Singers sem naut mikillar velgengni í áraraðir og starfar reyndar enn. Hann er nú eftirsóttur stjórnandi og ráðgjafi á sviði kórtónlistar víða um heim og hefur í mörg ár gegnt stöðu prófessors í kórstjórn og kirkjutónlist við tónlistardeild Yale háskóla- einnig stjórnandi Yale Schola Cantorum og Simon Carrington Chamber Singers. Hann stjórnar nú í fyrsta sinn á Íslandi.
Úr umsögnum:
Carrington is one of the choral worlds elite... with the hand of a choral magician... a teacher and advocat who fires the imagination of his students. EARLY MUSIC AMERICA
His numerous concerts and masterclasses reveal a cast-iron professionalism and boundless energy, his authoritative direction wrought from a wealth of experience and a profound musical mind. CHOIR AND ORGAN
Níundu og síðustu hádegistónleikar sumarsins miðvikudaginn 26. ágúst.
Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, hefur staðið fyrir tónleikaröð í Hallgrímskirkju á miðvikudögum kl. 12 í júlí og ágúst í samvinnu við Listvinafélag Hallgrímskirkju við frábærar undirtektir.
Tilgangur tónleikaraðarinnar hefur verið að gefa þeim fjölmörgu íslensku og erlendu gestum, sem heimsækja Hallgrímskirkju tækifæri til að upplifa lifandi tónlistarflutning í hæsta gæðaflokki, þrátt fyrir framkvæmdirnar, sem nú setja svip sinn á kirkjuna og starfið þar. Síðustu hádegistónleikarnir eru miðvikudaginn 26. ágúst kl. 12.
Flutt verður fjölbreytt efnisskrá, þ.s. fagrar perlur íslenskrar og erlendrar kirkjutónlistar hljóma undir hvelfingum Hallgrímskirkju. Tónleikarnir standa í u.þ.b. hálfa klukkustund, meðan hádegishlé er á framkvæmdum við turninn og er miðaverð kr. 1000.
Schola cantorum hefur átt mjög annríkt í sumar, hefur m.a. sungið á 9 tónleikum í Hallgrímskirkju, komið fram á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju og Sálmafossi á Menningarnótt og tekur nú í þátt verkefni með Björk Guðmundsdóttur. Auk þess er Schola cantorum mjög eftirsóttur sönghópur við jarðarfarir og aðrar kirkjulegar athafnir.
Næstu stórtónleikar Schola cantorum verða 6. september nk., þ.s. gestastjórnandi verður Simon Carrington frá Bretlandi, en æfingar fyrir þá tónleika eru þegar hafnar.
Stjórnandi kórsins er Hörður Áskelsson tónlistarstjóri Hallgrímskirkju og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar.
Sálmafoss í Hallgrímskirkju verður haldinn í þriðja sinn á Menningarnótt en hann hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur undanfarin ár.
Á Sálmafossinum verða frumfluttir sálmar eftir
Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason,
Sveinbjörn J. Baldvinsson og Tryggva M. Baldvinsson,
Gerði Kristnýju og Báru Grímsdóttur,
Böðvar Guðmundsson og Jón Hlöðver Áskelsson,
Sigurð Pálsson og Margréti Kristínu Sigurðardóttur,
Kristján Kristjánsson (KK)
Jónu Hrönn Bolladóttur og Gunnar Gunnarsson.
Mótettukór Hallgrímskirkju frumflytur sálmana undir stjórn Harðar Áskelssonar kl. 15 og hefst þar með dagskrá Sálmafossins sem mun standa fram á kvöld.
Að öðru leyti koma um 200 flytjendur fram á Sálmafossi 2009. Þar má nefna Hammond Hymnodíu í samvinnu við Jazzhátíð í Reykjavík með Þóri Baldurssyni á Hammond, Gunnari Gunnarssyni á Klais orgelið og Sigurði Flosasyni á saxófón, þá verður samleikur á 2 orgel og píanó og ýmsir kórar og flytjendur koma fram.
Dagskránni lýkur með tónleikum Mótettukórsins kl. 21 og í kjölfarið verður stutt helgistund.
Kaffihús verður opið í suðursal kirkjunnar til ágóða fyrir starfsemi Listvinafélags Hallgrímskirkju, en Sálmafoss er samvinnuverkefni embættis Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og Listvinafélags Hallgrímskirkju.
Einn fremsti konsertorganisti heims í dag, Susan Landale, kemur fram á glæsilegum lokatónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju 2009.
Susan Landale er skosk að uppruna en er búsett í Frakklandi. Hún skipar sér í hóp fremstu konsertorganista í heiminum í dag og eftir hana liggur fjöldi upptaka sem hlotið hafa mikið lof. Hún er einnig mjög virtur kennari og er nú prófessor við Konunglega tónlistarháskólann í London. Susan Landale er reglulegur gestur Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju og mikill fengur fyrir íslenska tónleikagesti að fá hana hingað til lands. Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach, Felix Mendelssohn, Samuel S. Wesley, Johannes Brahms og Petr Eben.
Nánari upplýsingar fást með því að smella hér
Roger Sayer, einn eftirsóttasti konsertorganisti breta, kemur fram á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju 2009.
Roger Sayer, dómorganisti í Rochester á Englandi, er eftirsóttur orgelleikari og stjórnandi. Hann ferðast víða um Evrópu og Bandaríkin til tónleikahalds og kemur reglulega fram á virtum orgelhátíðum. Nýverið kom hann fram á hátíðartónleikaröð í St. Paul’s dómkirkjunni í London. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna sem einleikari og upptökur hans hafa hlotið lof gagnrýnenda. Hann hefur nokkrum sinnum áður komið fram á sumartónleikum Listvinafélags Hallgrímskirkju og er íslenskum orgelunnendum því að góðu kunnur. Efnisskrá hans er fjölbreytt og samanstendur af verkum eftir Marcel Dupré, Maurice Duruflé, Frank Bridge, W.A. Mozart, J.S. Bach og Felix Mendelssohn.
Nánari upplýsingar fást með því að smella hér
Einn helsti sérfræðingur Íslands í flutningi gamallar orgeltónlistar kemur fram á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju 2009.
Eyþór Ingi Jónsson, organisti Akureyrarkirkju, er sjötti gestur Alþjóðlegs orgelsumars 2009. Eyþór hefur unnið ötullega að uppbyggingu listalífs á Akureyri undanfarin ár og er mikilvirkur í tónleikahaldi, bæði sem kórstjóri og orgelleikari. Hann sérhæfir sig í flutningi gamallar tónlistar og en á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Johann Sebastian og Carl Philipp Emanuel Bach, Johann Heinrich Buttstett, Georg Muffat, Robert Schumann, Joseph Haydn og Felix Mendelssohn.
Hinn alþjóðlega viðurkenndi organisti, Douglas Cleveland, lætur Klais-orgelið hljóma á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju 2009
Bandaríski organistinn Douglas Cleveland hlaut alþjóðlega viðurkenningu er hann sigraði í keppni ungra listamanna í Dallas 1994. Síðan þá hefur hann verið eftirsóttur víða um heim sem einleikari og sem meðleikari með kórum og hljómsveitum. Hann mun flytja verk eftir Henri Mulet, Louis Vierne, Joseph Jongen, Felix Mendelssohn og David Briggs.
Organisti dómkirkjunnar í Berlín leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju 2009.
Andreas Sieling er dómorganisti í Berlín og auk þess virtur fræðimaður og kennari. Þetta er í fyrsta sinn sem hann heldur tónleika hér á Íslandi en hann hefur skapað sér góðan orðstír og komið fram á fjölda tónleika víðs vegar um heim og því hvalreki fyrir íslenska unnendur orgeltónlistar. Á efnisskránni eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Felix Mendelsshon og Louis Vierne.