• Íslenska
  • English

Forsíđa

Hátíđahljómar viđ áramót PDF Prenta Rafpóstur
ţriđjudagur, 29 desember 2009
aramotÍ sautjánda sinn býður Listvinafélagið til þessara hátíðatónleika á Gamlársdag og þeir félagar, trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson og orgelleikarinn Hörður Áskelsson kunna svo sannarlega að kveðja gamla árið og fagna því nýja með viðeigandi lúðraþyt og orgelleik.

Efnisskrá tónleikanna að þessu sinni er að flestu leyti hefðbundin. Fluttar verðar tvær sónatínur eftir Johann Pezel, borgarlúðraþeytara Leipzigborgar, konsert fyrir tvo trompeta og orgel eftir Johann Melcior Molter en hann starfaði mest í Suður-Þýskalandi, í Eisenach og síðar í Karlsruhe. Hið fræga Adagio eftir Giazotto og Albinoni þar sem trompetarnir leika aðalröddina er fast á efnisskrá tónleikanna og hin þekkta Tokkata og fúga í d-moll eftir J.S. Bach  er ómissandi á Hátíðahljómum. Fyrsta verk tónleikanna er þó nýtt af nálinni. Giubilante, nýtt verk Áskels Mássonar verður frumflutt. Þetta er verk sem Áskell hefur skrifað fyrir Trompeteríuna. Tónleikarnir standa yfir í u.þ.b. 45-50 mínútur, en aftansöngur í Hallgrímskirkju hefst kl. 18 og er útvarpað beint á Rás 1.

Samstarf Ásgeirs, Eiríks Arnar og Harðar hófst árið 1993 en auk Hátíðahljóma við áramót hafa þeir myndað tríóið Trompetería sem hefur komið fram á tónleikum bæði hérlendis og erlendis . Þá leika þeir Ásgeir og Eiríkur oft með Herði við ýmsar athafnir í kirkjunni. Þeir leika yfirraddir við uppáhaldssálmana okkar, yfirraddir sem oftar en ekki verða til með penna Harðar vegna tilefnisins. Félagarnir þrír eru löngu orðnir landsþekktir tónlistarmenn. Ásgeir og Eiríkur leika báðir með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að vera virkir í tónlistarlífinu almennt, m.a. með Hljómsveit Íslensku óperunnar , Kammersveit Reykjavíkur og Caput-hópnum. Þá hafa þ eir leikið einleik bæði með Sinfóníuhljómsveitinni og Kammersveitinni. Þeir hófu báðir tónlistarnám sitt hér á Íslandi en stunduðu framhaldsnám vestanhafs, Ásgeir í New York en Eiríkur í Boston og svo í Los Angeles.

Eftir að hafa verið í framhaldsnámi í orgelleik í Þýskalandi var Hörður ráðinn organisti og kantor Hallgrímskirkju árið 1982 þar sem hann hefur starfað síðan. Hann stjórnar Mótettukór Hallgrímskirkju og kammerkórnum Schola cantorum og er listrænn stjórnandi Listvinafélags Hallgrímskirkju og Kirkjulistahátíðar. Þá er Hörður einnig söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar. Hörður hefur margoft hlotið viðurkenningar vegna starfa sinna, var Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2002 , var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu 2004 og hlaut íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2006.

Forsala aðgöngumiða er í Hallgrímskirkju og er kirkjan opin kl. 9-17, s. 510 1000.

Almennt miðaverð er kr. 2500, en verð til listvina er kr. 1000.
 
Nćsta frétt >
 

Á döfinni
Engir viđburđir

© 2010 Listvinafélag Hallgrímskirkju
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.

Coast Milk Productions 2007