Einn fremsti blandaði kór Bæjaralands, Heinrich Schütz Ensemble, heldur tónleika í Hallgrímskirkju sunnudaginn 5. September klukkan 17:00.
Tónleikarnir bera nafnið “Friður á jörðu” og á efnisskránni eru verk eftir Josquin, Schütz, Jennefelt, Tormis, Schönberg o.fl.
Kórinn, sem kennir sig bæinn Vornbach sem er í hjarta Bæjaralands á landamærum Þýskalands, Tékklands og Austurríkis hefur hlotið mikið lof og unnið til ýmissa verðlauna og viðurkenninga, m.a. menningarverðlaun Passau og Bayern og hefur komið fram víða um Evrópu allt frá Portúgal til Rússlands, auk þess að halda fjölda tónleika í löndunum þremur.
Í maí síðastliðnum hlaut kórinn aðalverðlaun alþjóðlegu kórahátíðarinnar í Cork á Írlandi.
Í verkefnavali kórsins er lögð mikil áhersla á tónlist gömlu meistaranna eins og nafn kórsins bendir til, en einnig flutt nýrri kórverk.
Stjórnandi kórsins er Martin Steidler, prófessor í kórstjórn við Tónlistarháskólann í München.
Miðvikudaginn 25.ágúst kl. 12 á hádegi mun hinn margviðurkenndi kammerkór Schola cantorum syngja fagra íslenska og erlenda kirkjutónlist og ættjarðarlög undir hvelfingum Hallgrímskirkju, m.a. tónlist sem tengd er sálmum Hallgríms Péturssonar. Þetta verða síðustu tónleikar sumarsins, en Schola cantorum hefur haldið vikulega tónleika fyrir erlenda ferðamenn og íslenska unnendur kórtónlistar á miðvikudögum í júlí og ágúst í sumar. Aðsókn hefur verið mjög góð og mikil ánægja ríkt með þetta framtak kórsins til kynningar á íslenskri kóramenningu og sálmum Hallgríms Péturssonar.
Aðgangseyrir er kr. 1000, en ókeypis fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.
Halgeir Schiager organisti frá Osló leikur 14. og 15. ágúst.
Nú er komið að síðustu tónleikahelgi Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju 2010. Meira en þrjátíu tónleikar hafa verið haldnir í sumar og hafa þúsundir tónleikagesta notið fallegrar orgeltónlistar og kórsöngs undir hvelfingum helgidómsins og hlýtt á frábæra listamenn. Bæði hefur íslenskt tónlistarfólk úr fremstu röð sem og erlendar stjörnur heiðrað hátíðina með þátttöku sinni. Að þessu sinni er það Halgeir Schiager, organisti við Sofienberg kirkjuna í Osló, og einn fremsti orgelleikari Norðmanna sem leikur á stóra Klais-orgelið.
Efnisskráin er fjölbreytt og spennandi því á tónleikum helgarinnar hljóma verk eftir Johann Gottlob Schneider, Gustav Merkel, Petr Eben og Norðmennina Leif Solberg og Kjell Mørk Karlsen.
Hádegistónleikar laugardagsins hefjast kl. 12 og er miðaverðið 1000 kr.
Sunnudagstónleikarnir, sem jafnframt eru lokatónleikar hátíðarinnar, hefjast kl. 17 og er miðaverðið 1500 kr.
Frítt er fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.
Kári Þormar, nýráðinn organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík, leikur á næstsíðustu helgartónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju. Fyrri tónleikar Kára eru laugardaginn 7. ágúst kl. 12 - 12.30 og mun Kári þar leika verk eftir Dubois, Mozart, J. S. Bach og Widor. Síðari tónleikarnir eru sunnudaginn 8. ágúst kl. 17. Þar mun Kári leika verk eftir J. S. Bach, William Boyce, Karg- Elert, Þorkel Sigurbjörnsson og Widor.
Miðaverð er kr. 1000 á laugardagstónleikana en 1500 á sunnudagstónleikana. Frítt er fyrir listvini.
Sunnudaginn 8. ágúst opnar myndlistarsýningin UPPLAUSN í Hallgrímskirkju. Á sýningunni beinir Hulda Stefánsdóttir myndlistarmaður sjónum sínum að græna litnum og merkingu hans í samhengi menningar, trúar og samtíma en grænn er kennilitur yfirstandandi tímabils í kirkjuárinu. Samsett heild græntóna málverka tekst hér á við grámynd kirkjubyggingar Hallgrímskirkju og er lóðréttum hátíðleikanum mætt með áherslu á það gjörningstengda í málverkinu, hraða og hráleika í láréttri afstöðu til umhverfisins. Leitað er hughrifa handan táknmynda og myndlýsinga út frá þeim kjarna skynjunar sem liturinn er. Auk málverka í fordyri kirkjunnar lýsir grænu út um efsta hluta kirkjuturns Hallgrímskirkju þegar skyggja tekur. Má geta sér þess til að þar smjúgi út grænn bjarmi upplausnar fordyrisins.
Sýningin UPPLAUSN er önnur af þremur í sýningarröð Listvinafélags Hallgrímskirkju sem kallast KRISTIN MINNI. Þar er myndlistarmönnum boðið að vinna verk sérstaklega fyrir kirkjuna og að fá guðfræðing og skrifara til samráðs og samræðu.
Guðrún Kristjánsdóttir er sýningarstjóri sýningarraðarinnar.
Félagar úr kammerkórnum Schola cantorum flytja nokkrar perlur af verkefnaskrá sinni á hádegistónleikum miðvikudaginn 4. ágúst.
Inngöngulagið verður dæmigerður íslenskur tvísöngur við velþekkt bænavers Hallgríms Péturssonar, skáldprestsins frá 17. öld. Næst flytja þau tónsetningu á þeirri bæn Hallgríms, sem flestir Íslendingar kunna, en síðan þrjár Maríubænir eftir þekkt íslensk tónskáld. Tvö af uppáhaldsverkum kórsins eftir þá Händel og Byrd koma þarnæst, en að lokum flytjur kórinn tvo friðarsöngva íslenskra höfunda. Tveir einsöngvarar úr röðum kórsins, Sólveig Samúelsdóttir og Hafsteinn Þórólfsson koma fram á tónleikunum.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Efnisskrá:
1. Vertu Guð faðir (Jakob Tryggvason)
2. Maríukvæði (Þorkell Sigurbjörnsson)
3. Haustvísur til Maríu (Atli Heimir)
4. Ave María (Sigvaldi Kaldalóns) einsöngvari: Sólveig Samúelsdóttir
Sýningu Ólafar Nordal myndlistarmanns LEIÐSLA, sem opnaði á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju í lok mars, lýkur mánudaginn 2. ágúst.
Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma kirkjunnar sem er opin frá kl. 9-20 alla daga nema sunnudaga, en þá er opið til kl. 17, en lokað er meðan á hádegistónleikum laugardagsins stendur frá kl. 12- 12.30.
Sýningin hefur vakið mjög mikla athygli innlendra sem erlendra gesta og hlotið mikið lof.
Með sýningu Ólafar Nordal myndlistarmanns hófst ný sýningarröð í Hallgrímskirkju sem kallast KRISTIN MINNI.
Verk Ólafar er unnið í samstarfi við Jón Nordal tónskáld sem samdi nýtt lag fyrir verkið, við sálm Hallgríms Péturssonar, Gefðu að móðumálið mitt.
Sóknarbörn kirkjunnar við Sjafnargötu ljá verkinu raddir sínar og ásjónur. Leiðsla er staðsett í fordyri og kirkjuskipi Hallgrímskirkju auk þess að hljóma í klukkum kirkjunnar.
Í sýningarröðinni KRISTIN MINNI er myndlistarmönnum boðið að fá guðfræðing og skrifara til samráðs og samræðu. Þátttakendur í samræðunni um sýningu Ólafar eru séra María Ágústsdóttir og Ólafur Gíslason, listfræðingur. Á sýningunum geta gestir hlustað á kjarna þeirrar samræðu, vonandi til aukins skilnings á merkingu verkanna og tilurð þeirra.
Næsti þátttakandi í sýningarröðinni er Hulda Stefánsdóttir, en sýning hennar verður opnuð þ. 8. ágúst n.k. Sýning Hannesar Lárussonar hefst síðan í byrjun desember.
Sýningarstjóri er Guðrún Kristjánsdóttir, myndlistarmaður.
Hljóðupptöku og aðstoð við hljóðverk annast Ríkharður H. Friðriksson.
Upptöka og úrvinnsla samræðna annast Ævar Kjartansson.
Steingrímur Þórhallsson er uppalinn á Húsavík þar sem hann hlaut sína fyrstu tónlistarmenntun. Hann lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 1998. Orgelkennari hans var Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti. Haustið 1998 hóf hann nám við Pontificio Istituto di Musica Sacra í Róm, sem er kirkjutónlistarstofnun Páfagarðs. Þaðan tók hann lokapróf, Magistero in organo, sumarið 2001 undir leiðsögn Giancarlo Parodi.
Steingrímur hefur komið fram í mörgum helstu kirkjum á Íslandi við góðan orðstír, bæði sem einleikari og meðleikari, og skipta tónleikar hans nú tugum. Einnig hefur hann leikið á nokkrum hljóðritum hjá Ríkisútvarpinu, meðal annars tvo orgelkonserta eftir Händel með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur komið fram á tónleikum erlendis, meðal annars á Ítalíu, Eistlandi og Finnlandi, sem og getið sér gott orð sem kórstjórnandi, nú síðast í Messíasi eftir Händel með kór Neskirkju og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna.
Steingrímur starfar sem organisti og kórstjóri við Neskirkju í Reykjavík og vinnur jafnframt með nokkrum tónlistarhópum á Íslandi. Steingrímur kemur nú fram í annað sinn á helgartónleikum Alþjóðlegs orgelsumars.
Efnisskrár helgarinnar eru gjörólíkar, því á laugardagstónleikunum leikur Steingrímur umritanir á þremur konsertum frá barokktímanum, en á tónleikum sunnudagsins mun Steingrímur m.a. frumflytja nýtt verk eftir sjálfan sig Preludia pesante auk þess að flytja verk eftir Stanford og Prelúdíu og fúgu um nafnið Alain eftir Duruflé.
Aðgangseyrir er kr. 1000 á laugardagstónleikana, sem eru u.þ.b. 30 mínútna langir, en sunnudagstónleikarnir standa í 1 klst. og er miðaverð 1500 kr.